Fyrirspyrjandi (Ögmundur Jónasson):
Herra forseti. Þessi fyrirspurn, sem sett var fram fyrir alllöngu en hefur ekki komið til umræðu fyrr en nú, var sett fram til að knýja á um að farið yrði að lögum og reglugerð um þessi efni yrði sett. Gott er til þess að vita að nú sé unnið að smíði reglugerðarinnar í dómsmrn. og þess sé skammt að bíða að hún komist til framkvæmda. Því vil ég fagna.