Vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004

Fimmtudaginn 17. febrúar 2000, kl. 14:43:06 (4488)

2000-02-17 14:43:06# 125. lþ. 66.3 fundur 296. mál: #A vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004# þál. 23/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 125. lþ.

[14:43]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég vil horfa dálítið lengra fram í tímann en hv. þm. Kristján Möller og þess vegna teldi ég alveg eðlilegt að inn í þennan lista upp á 21 verkefni mætti standa liður nr. 22, en ég er líka alveg sammála honum um að þingmenn á þessari öld muni í sjálfu sér taka á þessu máli. En ég, herra forseti, vil gjarnan horfa svolítið lengra þó að ég sé alveg ánægður með þær áherslur sem settar eru fram að öðru leyti í jarðgangaáætluninni.