Starfsemi Barnahúss

Mánudaginn 06. mars 2000, kl. 15:42:20 (4913)

2000-03-06 15:42:20# 125. lþ. 72.2 fundur 356#B starfsemi Barnahúss# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 125. lþ.

[15:42]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég held að ég hafi heyrt rétt að hv. þm. hafi talað um slæma málsmeðferð. Kannski hefur mér misheyrst. En ég vil a.m.k. undirstrika að það eru að sjálfsögðu dómarar hér á landi sem samkvæmt lögunum fara með þessar yfirheyrslur og ég treysti fyllilega þeirra mati í þessum málum og segi þeim ekki fyrir verkum.