Almannatryggingar

Þriðjudaginn 04. apríl 2000, kl. 16:47:46 (5904)

2000-04-04 16:47:46# 125. lþ. 89.14 fundur 266. mál: #A almannatryggingar# (tannlækningar) frv., Flm. ÖJ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 125. lþ.

[16:47]

Flm. (Ögmundur Jónasson):

Herra forseti. Ég biðst afsökunar á að koma seint í ræðustól, en ég var að svara þýska sjónvarpinu til um það hvort Alþingi Íslendinga tæki tillit til álfa í sínu starfi þannig það þarf að sinna ýmsum mikilvægum verkefnum.

Ég mæli hér fyrir ... (Gripið fram í: Eins og álfur út úr hól!) ekki sem álfur út úr hól að vísu, en fyrir mjög brýnu framfaramáli, breyting á lögum um almannatryggingar. Við leggjum þetta frv. fram ég og hv. þm. Þuríður Backman þar sem við gerum tillögu um breytingu á 7. gr. almannatryggingalaga sem orðist svo, með leyfi forseta:

,,Fyrir almenna tannlæknaþjónustu greiða sjúkratryggingar samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur. Gjaldskráin gildir bæði um tannlækningar sem starfræktar eru á vegum hins opinbera og annarra. Í stað gjaldskrár ráðherra er Tryggingastofnun þó heimilt að semja um gjaldskrá er gildi um almenna tannlæknaþjónustu.

Greiðslur sjúkratrygginga skv. 1. mgr. skulu vera sem hér segir:

1. Fyrir almennar tannlækningar barna og ungmenna, 18 ára og yngri, 90% kostnaðar, en hver einstaklingur í þessum aldurshópi skal eiga kost á einni skoðun á ári hjá tannlækni sér að kostnaðarlausu.

2. Heimilt er að greiða 80% kostnaðar við gullfyllingar, gerð króna og brúa hjá börnum og ungmennum, 18 ára og yngri, samkvæmt reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum tryggingaráðs. Því aðeins kemur til greiðslna samkvæmt þessum tölulið að fyrir liggi sérstök umsókn og samþykki sjúkratrygginga.

3. Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega 100% kostnaðar, þó er ekki greitt fyrir gullfyllingar, krónur, brýr eða tannplanta. Ráðherra er heimilt, að fengnum tillögum tryggingaráðs, að ákveða greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna þessara þátta.

Reikningi fyrir tannlæknaþjónustu skal framvísað á reikningsformi sem Tryggingastofnun ákveður.``

Þetta er 1. gr. frv. eins og hún hljóðar, en svipað frv. var einnig lagt fram á 122. og 123. þingi og var þá vísað til heilbr.- og trn. án þess að hljóta þar afgreiðslu. Hins vegar hefur verið komið til móts við þau frv. í veigamiklum atriðum. Það er mjög mikilvægt að halda því til haga að dropinn holar steininn. Málflutningur hér er liður í baráttu mjög margra fyrir því að efla tannlæknaþjónustuna í landinu og er gott til þess að vita að þessi barátta hefur skilað nokkrum árangri á undanförnum árum.

Meðal þess sem gerst hefur varðar bæði unglinga og elli- og örorkuþega. Viðmiðunaraldursmörk hafa verið hækkuð í 17 ár hjá unglingum eins og lagt var til í frv. á sínum tíma en greiðsluhlutfallið var þó ekki hækkað í 90% eins og við lögðum til. Þá fá elli- og örorkulífeyrisþegar sem ekki hafa tekjutryggingu nú 50% af kostnaði endurgreiddan en fengu enga endurgreiðslu áður. Elli- og örorkulífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu fá nú greidd 75% af tannlæknakostnaði, en fengu áður 50%. Elli- og örorkulífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu fá nú greidd 75% af tannlækniskostnaði, en fengu áður 50%. Elli- og örorkulífeyrisþegar sem eru langsjúkir og fá ekki vasapeninga fá nú 100% endurgreiðslu en fengu 75% áður. Þá fá börn í umönnunarflokki 3 nú 90% af kostnaði eins og börn í flokkum 1 og 2, en fengu áður 75%.

Þetta eru réttarbætur sem eru mjög mikilvægar. En það er nauðsynlegt að stíga stærri skref og minna á að í skýrslu sem birt var á vegum landlæknisembættisins, árið 1997 mun það hafa verið, þá kom í ljós að efnalítið fólk veigraði sér við að leita læknisþjónustu vegna aukinna byrða og var það einkum á sviði tannlækninga sem efnalítið fólk veigraði sér við að leita læknis.

Í því sambandi er rétt að rifja upp ofurlítið upp söguna. Greiðsluhlutdeild hins opinbera í tannlæknakostnaði hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Á áttunda og níunda áratugnum var kostnaðarhlutdeild Tryggingastofnunar í útgjöldum heimilanna aukin jafnt og þétt og var svo fram á tíunda áratuginn. Þá var verið að sækja á og bæta stöðu fólks. En í byrjun þessa áratugar þá seig mjög á ógæfuhliðina. Þegar þarna var komið sögu var kostnaðarhludeild notenda, aldraðra og öryrkja, aukin. Börn og unglingar undir 16 ára aldri fengu allan tannlæknakostnað sinn endurgreiddan í byrjun tíunda áratugarins. En á árunum 1992--1993 var endurgreiðslan færð í áföngum niður í 75%. Á þessum árum var framlag Tryggingastofnunar við tannlæknakostnað elli- og örorkulífeyrisþega sem njóta óskertrar tekjutryggingar lækkað úr 100% í 75% og hlutur þeirra sem búa við skerta tekjutryggingu var lækkaður í 50%. Aðrir elli- og örorkulífeyrisþegar sem höfðu fengið greidd 50% af tannlæknakostnaði sínum fengu nú engan stuðning. Fleiri ráðstafanir voru gerðar í skerðingarátt, einkum á sviði tannréttinga. En síðan hafa menn verið að rétta kúrsinn örlítið á undanförnum árum og er það vel.

Með frumvarpinu er gert ráð fyrir breyttu greiðsluhlutfalli hins opinbera í tannlækniskostnaði en einnig er aldursviðmiðunarmörkum breytt úr 17 árum í 18. Við leggjum til að aldursmörkin verði 18 ár. Gert er ráð fyrir að fram að 18 ára aldri greiði fólk einvörðungu 10% af tannlækniskostnaði en brýnt er að endurmeta með tilliti til eftirlitsþáttarins hvenær rétt væri að endurgreiða kostnaðinn að fullu. Annars staðar á Norðurlöndunum eru aldursmörkin og þátttaka hins opinbera í tannlækniskostnaði meiri en hér. Í Danmörku er allur kostnaðurinn greiddur af hinu opinbera til 18 ára aldurs, í Finnlandi og Noregi til 19 ára aldurs og í Svíþjóð til 20 ára aldurs. Æskilegt er að innan fjögurra ára verði búið að hækka aldursmörkin í 20 ár og byggjum við þá við svipað fyrirkomulag og best gerist á Norðurlöndum að þessu leyti.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að draga úr kostnaði elli- og örorkulífeyrisþega við tannlækningar en þess eru mörg dæmi að efnalítið fullorðið fólk og öryrkjar hafi ekki getað leitað sér lækninga. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til yrði dregið verulega úr jaðaráhrifum innan almannatryggingakerfisins á elli- og örorkulífeyrisþega.

Samkvæmt frumvarpinu er sú breyting gerð á 1. mgr. 37. gr. laga um almannatryggingar að felld er niður tilvísun til tannréttinga og sama gildir um tilvísun til gullfyllinga, krónu- og brúargerðar í 1. tölul. 2. mgr. Í stað þess er vísað til almennra tannlækninga en það hugtak skýrir sig að nokkru leyti sjálft. Hér er um að ræða almennar viðgerðir og tannréttingar aðrar en þær sem gerðar eru með föstum tækjum en um slíkar tannréttingar gilda reglur sem vísað er til í 33. gr. almannatryggingalaga.

Varðandi kostnaðinn þá er erfitt að áætla nákvæmlega kostnað við breytingarnar en þegar kostnaður við þær er metinn ber að hafa í huga hinn mikla fjárhagslega ávinning sem hlytist af því að bæta tannheilsu þjóðarinnar. Bætt tannheilsa og betri vitund ungs fólks um mikilvægi þess að vernda tennurnar mundi stórlega draga úr tilkostnaði þjóðarinnar við tannlækningar þegar fram líða stundir. Raunhæft er að ætla að kostnaður vegna barna muni aukast um rúmar 140 millj. kr. og vegna lífeyrisþega, þ.e. elli- og örorkulífeyrisþega, um rúmar 90 millj. kr. Heildarkostnaðaraukinn væri samkvæmt þessu um 230 millj. kr.

Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni umræðu vísað til heilbrn. Alþingis.