Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Fimmtudaginn 06. apríl 2000, kl. 20:03:30 (6092)

2000-04-06 20:03:30# 125. lþ. 94.17 fundur 289. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# (stimpilgjald) frv. 19/2000, Frsm. minni hluta JB
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 125. lþ.

[20:03]

Frsm. minni hluta samgn. (Jón Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. til laga um breytingu á lögum um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar felur í sér að fella niður stimpilgjöld af hlutabréfum þeirra hlutafélaga sem höfðu verið stofnuð á grundvelli þeirra laga.

Í lögum um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar, nr. 103/1996, segir í lok 2. mgr. 4. gr.: ,,Hlutabréf, sem gefið verður út í tengslum við stofnun félagsins eða skiptingu þess samkvæmt niðurlagsákvæði í 2. mgr. 2. gr. skal undanþegið stimpilgjöldum.``

Fram kom við umræðu um þetta frv. að tilgangurinn væri að stofna hlutafélag um reksturinn. Þetta væri bara formsatriði til þess að auðvelda fyrirtækinu að takast á við verkefni sín. Og það kom einmitt skýrt fram í umræðunni að ekki stæði til að selja fyrirtækið.

Samkvæmt heimild í 2. mgr. 2. gr. þessara sömu laga hafa nú verið stofnuð tvö hlutafélög, Landssími Íslands hf. og Íslandspóstur hf. Ekki verður séð að síðan þá hafi nokkuð gerst sem ekki var fyrirséð við setningu laganna árið 1996 og því er ekki sérstök ástæða nú fremur en þá til að innheimta stimpilgjöld af viðkomandi hlutabréfum sem eru að fullu í eigu ríkisins. Miðað við óbreytt eignarform, þjónustuskyldur og kvaðir gagnvart landsmönnum öllum, óháð búsetu og stöðu í þjóðfélaginu, er ekki nú frekar en við setningu laganna 1996 sérstök ástæða til að ríkið innheimti þessi gjöld. Þessi gjöld mundu hvort sem er bara renna til ríkisins og allur arður af hlutafélögunum rennur til ríkissjóðs.

Skýrt kom fram við setningu laganna að ekki stæði til að setja hlutabréf Pósts og síma hf. á markað eða selja fyrirtækin sem stofnuð væru á grundvelli þeirra. Eigi hins vegar að selja Landssíma Íslands hf. eða Íslandspóst hf. að hluta eða öllu leyti er þessi lagabreyting vafalaust nauðsynleg. Eina sýnilega ástæðan með þessu frumvarpi er að búa í haginn fyrir sölu fyrirtækjanna. Sé svo hefðu þær ástæður einfaldlega átt að koma fram í greinargerð með frumvarpinu.

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs er andvígur öllum tilburðum stjórnvalda sem lúta að sölu og einkavæðingu þessara mikilvægu þjónustustofnana almennings og því styður minni hlutinn ekki frumvarpið. Hann styður ekki að fella niður stimpilgjöld af hlutabréfunum. Hann telur enga ástæðu til þess nú frekar en þegar hlutafélögin voru stofnuð að gera það. Ef þetta er liður í að selja eða einkavæða þessi þjónustufyrirtæki, þá varar hann við þeirri þróun og er andvígur henni.