Forseti (Halldór Blöndal):
Hv. þm. óskar eftir því að 20., 21. og 22. dagskrármálum verði frestað þangað til hæstv. landbrh. hefur náð heilsu að nýju. Ég skil vel að hv. þm. skuli sakna hæstv. landbrh. og kjósa að eiga orðastað við hann og er ástæðulaust annað en verða við þessari beiðni.