Ábúðarlög

Þriðjudaginn 11. apríl 2000, kl. 13:35:46 (6314)

2000-04-11 13:35:46# 125. lþ. 97.3 fundur 239. mál: #A ábúðarlög# frv. 21/2000, ÞBack (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 125. lþ.

[13:35]

Þuríður Backman:

Herra forseti. Með tilliti til þess að ábúðarlögin ásamt öðrum lögum sem snúa að ábúð og landbúnaði eru í endurskoðun, þeirri endurskoðun verði hraðað og fullt tillit verði tekið til umsagna og athugasemda sem hafa komið fram varðandi þessa afgreiðslu, þá mun ég sitja hjá í atkvæðagreiðslu um frv. í heild sinni.