Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti hefur hlýtt á athugasemdir hv. þm. en eins og hann gat um sjálfur eru svör við fyrirspurnum þingmanna til ráðherra á ábyrgð hinna síðarnefndu. Þannig háttar til að hæstv. fjmrh. hefur fjarvistarleyfi í dag og getur því ekki tekið til svara en forseti mun eins og venja er til koma þeim ábendingum sem hér hafa verið færðar fram rétta boðleið.