Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Ekki skildi ég nú spurninguna fyllilega og vona að hv. þm. komi aftur og ítreki hana. Ég vil geta þess að í óbyggðanefnd eða úrskurðarnefnd Norðmanna sitja þrír löglærðir fulltrúar og tveir aðrir, annar af hálfu landeigenda og síðan heimamaður, í öllu falli af því svæði sem fyrir er tekið hverju sinni.