Frsm. samgn. (Árni Johnsen):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. samgn. allrar um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000.
Með frumvarpinu er lagt til að lagt verði á jöfnunargjald vegna alþjónustu í samræmi við 15. gr. fjarskiptalaga, nr. 107/1999, en þar er kveðið á um að jöfnunargjald skuli ákveðið árlega með lögum. Er lagt til að jöfnunargjaldið fyrir árið 2000 verði 0,18% af bókfærðri veltu fjarskiptafyrirtækja af almennri þjónustu.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.