Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 22:58:59 (7281)

2000-05-09 22:58:59# 125. lþ. 111.16 fundur 553. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (sauðfjárafurðir) frv. 88/2000, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur, 125. lþ.

[22:58]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Það hefur ekki verið venjan í samningum við Bændasamtökin, forsvarsmenn bænda, að hafa þingmenn með í ráðum. Ég reikna því ekkert með því að frekar verði leitað til mín þá en nú.

Það að ég taki undir með fáeinum fjölmiðlum og kyndi undir óánægju þá mundi ég heldur vilja snúa þessu við því ég held ég hafi alltaf verið með fyrirvara um málið og vel má vera að fáeinir fjölmiðlar hafi tekið undir með mér um gagnrýni á þessi mál.