Einar Már Sigurðarson (andsvar):
Herra forseti. Enn á ný kemur hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og skýrir sjónarmið sín í þessu máli. Þar sem ég fékk ekki í gær nægilegar skýringar á því hvers vegna afstaða hans hefur breyst frá því 1990, bið ég hv. þm. enn að gera tilraun til þess að skýra fyrir mér hvaða breyting hafi orðið í byggðamálum frá því 1990 og til dagsins í dag. (Gripið fram í: 300.000 tonn.)