Valgerður Sverrisdóttir:
Hæstv. forseti. Allshn. sem fjallaði um þetta mál var sammála um að breytingin væri til bóta. Það er komið á stjórnsýslusambandi milli stjórnar og ráðherra og það er m.a. gert vegna ábendingar sem kom fram frá Ríkisendurskoðun.