Ásta R. Jóhannesdóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég hefði talið eðlilegt eftir þessi orðaskipti að hæstv. forseti minnti þingmenn á að trúnaður ríkir um það sem fram fer í nefndum þingsins, þau orðaskipti sem fara fram í nefndum þingsins. Því er í hæsta máta óeðlilegt að menn séu að ræða það hér í þingsalnum hvaða orðaskipti menn hafa átt í nefndum þingsins um persónuleg málefni. Það er í hæsta máta óeðlilegt. Ég hefði talið eðlilegt, herra forseti, að forseti minnti þingmenn á það því að greinilegt er að einhverjir virðast ekki vita að trúnaður skal ríkja um það sem fram fer í þingnefndum.