Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 15:19:00 (3633)

1999-12-21 15:19:00# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[15:19]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Í greinargerð með þessari þáltill. og í þeirri skýrslu sem fylgir með sem fylgiskjal frá Orkustofnun kemur mjög skýrt fram að stofnunin sjálf kemst að þeirri niðurstöðu að miðað við þá tímaáætlun sem menn hafa sett sér sé ekki um annað að ræða en fara í þessa virkjun sem er Fljótsdalsvirkjun, nákvæmlega þannig.