Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:14:38 (3685)

1999-12-21 18:14:38# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, GÖ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:14]

Guðrún Ögmundsdóttir:

Herra forseti. Umhverfismat verður ekki að raunveruleika, sú tillaga var felld og slíkt ber að harma. Náttúrunni er fórnað, það verður ekki aftur tekið. Fjármunum er sóað og vafi er á arðsemi framkvæmdanna. Þetta er ekki gæfuspor í mínum huga og ég segi nei.