Reynslusveitarfélög

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 21:47:31 (3748)

1999-12-21 21:47:31# 125. lþ. 52.6 fundur 109. mál: #A reynslusveitarfélög# (gildistími o.fl.) frv. 114/1999, félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 125. lþ.

[21:47]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Þetta frv. er samið og flutt í samráði við fyrirsvarsmenn Sambands ísl. sveitarfélaga. Þeir óskuðu eftir að þessi dagsetning yrði sett m.a. með tilliti til þess að vera kann að um þessi áramót yrðu málefni fatlaðra færð til sveitarfélaganna og þá væri skothent að hafa reynslusveitarfélagaverkefnið lifandi áfram. Ef svo yrði ekki er svo sem tækifæri til þess að framlengja þennan frest ef mönnum sýnist að ekki sé tímabært að flytja verkefnið þannig að ég leggst gegn þessari brtt. að svo komnu máli.