Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 304  —  248. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um loftskeytastöðina á Siglufirði.

Frá Kristjáni L. Möller.



     1.      Er enn þá ætlun Landssíma Íslands að leggja niður loftskeytastöðina á Siglufirði?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir að störf sem nú eru unnin á höfuðborgarsvæðinu verði flutt til Siglufjarðar, í stað þeirra sem lögð verða niður?
     3.      Telur ráðherra að nútímatækni í fjarskiptum geri kleift að vinna ýmis störf á vegum Landssímans utan höfuðborgarsvæðisins þar sem húsnæði er nægilegt og mikið framboð af sérþjálfuðu starfsfólki?