Ferill 449. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 720 — 449. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um rekstur Reykjadals í Mosfellssveit.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hyggst ráðherra grípa til aðgerða til að tryggja áframhaldandi óbreyttan rekstur Reykjadals í Mosfellssveit í sumar?
2. Eru einhver önnur úrræði tiltæk á vegum ráðuneytisins hvað varðar sumardvöl fatlaðra næsta sumar sem kæmu í stað og/eða til viðbótar starfseminni í Reykjadal?