Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara í neina orðræðu við þingmanninn um skilning hans á þessu máli. Þessi skilningur liggur fyrir, spurning mín og skilningur hans.
En ég vek athygli á því að hvorugur aðili, meiri hluti Hæstaréttar eða minni hluti er að fjalla um fjárhæðir. Þeir eru að fjalla um að skerða eða skerða ekki.