Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Forseti Íslands hefur gefið út svofellt bréf:
,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 8. febrúar 2001 kl. 10.30.
Gjört á Bessastöðum, 6. febrúar 2001.
Ólafur Ragnar Grímsson.
-------------------
Davíð Oddsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``
Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismenn svo og starfsmenn Alþingis býð ég velkomna til þingstarfa og læt í ljósi þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.