Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það sem farið hefur fram á milli aðila í þessu máli. Aðalatriðið er að verði málaferli út af þessu máli og fáist niðurstaða í því fyrir dómstólum þá mun það ekki aðeins gilda um þann einstakling sem þar á hlut að máli heldur alla einstaklinga sem hafa sambærilegar aðstæður. Það hlýtur að vera aðalatriði málsins.