Samningur um opinber innkaup

Þriðjudaginn 27. mars 2001, kl. 14:13:43 (6016)

2001-03-27 14:13:43# 126. lþ. 98.6 fundur 565. mál: #A samningur um opinber innkaup# þál., Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 126. lþ.

[14:13]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um aðild að samningi um opinber innkaup.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til þess að Ísland gerist aðili að samningi um opinber innkaup sem gerður var í Marakess 15. apríl 1994. Samningurinn er einn af fjölhliða samningum þeim sem tilgreindir eru í 4. viðauka við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Aðild að samningnum skuldbindur ríki til að veita fyrirtækjum í aðildarríkjunum aðgang að innkaupum opinberra aðila á jafnréttis- og gagnkvæmnisgrundvelli þegar verðmæti innkaupa fer yfir ákveðna fjárhæð, en viðmiðunarfjárhæðin er sú sama og gildir á Evrópska efnahagssvæðinu. Áhrif samningsins eru einkum þau að skylt verður að veita fyrirtækjum frá ríkjum utan EES-svæðisins aðgang að íslenskum innkaupamarkaði en á sama hátt opnar samningurinn íslenskum fyrirtækjum aðgang að mjög stórum markaði á jafnréttisgrundvelli.

Rétt er að geta þess að við umfjöllun í nefndinni kallaði nefndin fyrir sig Jón Steindór Valdimarsson frá samtökum atvinnulífsins auk fulltrúa frá ráðuneytum.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir nál. rita Tómas Ingi Olrich, Einar K. Guðfinnsson, Jónína Bjartmarz, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon með fyrirvara.