Fjárhagslegur aðskilnaður útgerðar og fiskvinnslu

Þriðjudaginn 03. apríl 2001, kl. 17:43:18 (6291)

2001-04-03 17:43:18# 126. lþ. 104.30 fundur 456. mál: #A fjárhagslegur aðskilnaður útgerðar og fiskvinnslu# þál., Flm. GAK (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 126. lþ.

[17:43]

Flm. (Guðjón A. Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um fjárhagslegan aðskilnað á rekstri útgerðar og fiskvinnslu. Tillagan hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna nefnd sem fái það verkefni að semja frumvarp til laga um fjárhagslegan aðskilnað milli reksturs útgerðar annars vegar og fiskvinnslu í landi hins vegar. Frumvarpið verði lagt fram á þessu þingi og að því stefnt að lögin taki gildi 1. janúar 2002.

Lögunum verði ætlað að skapa skilyrði fyrir eðlilega verðmyndun á öllum óunnum fiski á markaði, heilbrigðum og gegnsæjum viðskiptaháttum í fiskviðskiptum og koma þannig á eðlilegum samkeppnisskilyrðum á því sviði.

Ég vil aðeins víkja að greinargerðinni en þar segir um lagalegar forsendur, með leyfi forseta:

,,Núgildandi lög og reglur fela í sér að gerðar eru miklar kröfur um siðareglur í viðskiptum, virka samkeppni á markaði og gegnsæi hans. Lögleiðing samkeppnislaga, nr. 8/1993, markaði tímamót á þessu sviði. Einnig má vísa til þess að Ísland er bundið af samkeppnisreglum ESB vegna aðildar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og hefur sú skuldbinding víðtæk áhrif í íslenskum lögum og reglum. Sem dæmi um viðbrögð löggjafans má nefna þingsályktun um setningu siðareglna í viðskiptum á fjármálamarkaði sem samþykkt var á 125. löggjafarþingi, en þar voru hafðar til hliðsjónar reglur framkvæmdastjórnar ESB.

Í greinargerð þeirrar þáltill. segir m.a.: ,,Markmið reglnanna er að gefa viðmið fyrir siðlegt athæfi alls staðar á því svæði sem þær ná til, greiða fyrir virkri starfsemi verðbréfamarkaða og gæta almannahagsmuna.``

Á öðrum stað segir: ,,Til þess að hann [þ.e. verðbréfamarkaðurinn] megi þróast eðlilega allri þjóðinni til hagsbóta er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigðum og gagnsæjum viðskiptaháttum á öllum fjármagnsmarkaðinum.

Fullvíst má telja að það viðskiptalega umhverfi sem nú ríkir í verslun með óunninn fisk hér á landi fullnægi ekki settum kröfum EES-samningsins um virka samkeppni.``

[17:45]

Síðan er vikið að íslenskum samkeppnislögum.

,,Sú þáltill. sem hér er flutt á sér meginstoðir í lögbundnum markmiðum gildandi samkeppnislaga og er ætlað að þjóna þeim, en í 1. gr. laganna segir:

,,Lög þessi hafa það markmið að efla virka samkeppni í viðskiptum og þar með vinna að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins. Markmiði þessu skal náð með því að:

a. vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri,

b. vinna gegn óréttmætum viðskiptaháttum, skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum,

c. auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.``

Einnig má vísa til ýmissa annarra ákvæða samkeppnislaganna, svo sem 10. og 11. gr., og að auki er vert að benda á ákvæði 14. gr. en þar segir:

,,Þegar um er að ræða opinbert fyrirtæki eða fyrirtæki sem starfar að einhverju leyti í skjóli opinbers einkaleyfis eða verndar er samkeppnisráði heimilt að mæla fyrir um fjárhagslegan aðskilnað, annars vegar á milli þess hluta rekstrar fyrirtækisins sem nýtur einkaleyfis eða verndar og hins vegar þess hluta rekstrar sem er í frjálsri samkeppni við aðra aðila. Skal þess gætt að samkeppnisrekstur sé ekki niðurgreiddur af einkaleyfis- eða verndaðri starfsemi.``

Sé fullrar sanngirni gætt verður ekki annað séð en að framangreind ákvæði 14. gr. eigi fyllilega við um þann mikla aðstöðumun sem skapast milli útgerðarfyrirtækja sem árlega fá úthlutað aflaheimildum og njóta þannig verndar með slíkum stjórnvaldsbundnum leyfum og hins vegar fiskvinnslufyrirtækja sem engrar slíkrar verndar njóta en starfa í óheftri samkeppni á markaði.``

Síðan segir um óviðunandi ástand á innlendum fiskkaupamarkaði:

,,Með vísan til framangreindra ákvæða samkeppnislaga hlýtur það ástand sem nú ríkir og varað hefur um árabil á markaði um kaup og sölu á óunnum fiski, og alkunnugt er hvernig er háttað, að teljast óviðunandi. Engin skilyrði eru til eðlilegrar verðmyndunar á fiski og ótruflaðrar samkeppni í fiskviðskiptum þrátt fyrir að í landinu hafi um árabil verið starfandi uppboðsmarkaðir fyrir fisk.

Fiskviðskipti við núverandi kringumstæður skapa ófrið um verðlagningu á fiski milli sjómanna og útvegsmanna og grafa einnig undan tilvistargrundvelli innlendra fiskmarkaða. Skiptir þá ekki meginmáli hvort um viðskipti milli óskyldra eða skyldra aðila er að ræða. Þá er ríkjandi mikil samkeppnisleg mismunun í fiskvinnslunni sem bitnar hart á fiskvinnslufyrirtækjum sem ekki tengjast útgerð.``

Í greinargerðinni er vikið að viðskiptum óskyldra aðila og síðan skyldra aðila og síðan er vikið að fénýtingu veiðiheimilda sem ég ætla að lesa hér:

,,Fénýting veiðiheimilda í viðskiptum með fisk yrði bönnuð. Núverandi ástand í fiskviðskiptum með svo brengluðu verðmyndunarkerfi, eins og fyrr er lýst, er algjörlega óhæft. Þær ráðstafanir sem Alþingi greip til árið 1998 með setningu laga um stofnun Kvótaþings og Verðlagsstofu skiptaverðs, og ætlað var að færa ástand þessara mála til betra horfs, hafa samkvæmt fenginni reynslu mistekist með öllu. Því er brýnt að löggjafinn grípi inn í að nýju með því að áskilja með lögum fullan fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Að sjálfu leiðir að í slíkri löggjöf fælist algjört bann við því að veiðiheimildir yrðu fénýttar í viðskiptum með fisk.

Þjóðhagsleg hagkvæmni veiða og vinnslu mundi aukast. Þessa fullyrðingu mætti rökstyðja í löngu máli en verður ekki gert hér, enda ætti þess ekki að gerast þörf. Þáltill. þessi miðar að því, eins áður segir, að koma á eðlilegri samkeppni í viðskiptum með fisk. Virk samkeppni er árangursríkasta leiðin til þess að ná sem hagkvæmastri nýtingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins eins og kveðið er á um í 1. gr. gildandi samkeppnislaga. Löng reynsla annarra þjóða talar skýru máli um að þau orð eru sönn. Til lengri tíma litið má því einnig telja fullvíst að breytingin yrði til góðs fyrir atvinnugreinina í heild.``

Herra forseti. Síðan langar mig að vitna örstutt í frétt sem var í Auðlindinni 23. mars sl. Þar var verið að segja frá afkomu veiða og fiskvinnslu í Færeyjum. En Færeyjar eru einmitt það land sem tók fyrir nokkrum árum upp það ákvæði að selja allan fisk á fiskmarkaði og skilja milli veiða og vinnslu. Í þessari frétt sagði og ég gríp hér niður, með leyfi forseta:

,,Það eru 27% meira aflaverðmæti en árið á undan í færeyskum afla lönduðum. Færeyskir sjómenn hafa tvöfaldað árlegt aflaverðmæti sitt frá árinu 1996 og meira en þrefaldað það frá árinu 1993.``

Síðan segir:

,,Veiðar og vinnsla eru aðskilin og allur fiskur sem berst á land fer á uppboðsmarkað.``

Ég held að þetta sé kannski gleggsta dæmið um það hvernig eðlileg markaðsviðskipti hafa aukið hagsæld þjóðar því að í Færeyjum hefur það gerst á undanförnum árum að afkoma veiða og vinnslu hefur batnað mikið. Flotinn er talinn skuldlítill og segir m.a. í þessu plaggi að flotinn sé að vísu orðinn gamall en á honum hvíli tiltölulega mjög litlar skuldir og eiginfjárstaða útgerðarinnar sé sterk. Svo segir í þessari frétt og hér er verið að vitna í Dimmalætting.

Þetta litla hagkerfi sem er fimm sinnum fámennara en okkar eða eitthvað svoleiðis, virðist pluma sig mjög vel í þeirri frjálsu samkeppni sem þar var komið á og ég held að það yrði mikið gæfuspor fyrir íslensku þjóðina ef það skref væri stigið að aðskilja fjárhagslega veiðar og vinnslu og í framhaldi af því yrði vonandi sú þróun hér að smátt og smátt sæju menn eðlilegan farveg í því að selja aflann á fiskmarkaði. Þó að það sé ekki beinlínis bundið í þessari tillögu hér þá hlyti það að verða afleiðing þessa fjárhagslega aðskilnaðar.