Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá allshn. um frv. til laga um framkvæmd samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn.
Með frv. er verið að fullnægja skuldbindingum Íslands samkvæmt samningi um allsherjarbann við tilraunum um kjarnavopn sem samþykktur var í New York 10. september 1996. Mælir allshn. einróma með því að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
,,Við 1. gr. Í stað orðsins ,,tilraunasprengingar`` komi: tilraunir.``