Jón Bjarnason:
Herra forseti. Þetta frv. til laga um breytingar á laga\-ákvæðum er varða húsaleigubætur er mikið réttlætismál eins og hv. flm. hefur gert grein fyrir.
Herra forseti. Ég tel þetta svo mikið réttlætismál að ástæða sé til þess að það fái afgreiðslu nú á þessu þingi, fyrir þinglok. Ég lýsi yfir miklum stuðningi við að málið fái góðan framgang, herra forseti.