Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Miðvikudaginn 09. maí 2001, kl. 18:24:48 (7346)

2001-05-09 18:24:48# 126. lþ. 118.8 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv. 40/2001, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 126. lþ.

[18:24]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu beita mér gegn þessari bókun og þessari framkvæmd. Ég hef þegar bent á aðrar lausnir og vonast til að geta unnið þeim brautargengi þannig að húsnæðisvandi sveitarfélaga almennt verði leystur á annan hátt en með slíkum duldum styrkjum eins og ég gat um. Ég mun því að sjálfsögðu beita mér gegn þeirri bókun sem hv. þm. las upp úr.