Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég hef engu við málið að bæta, nema hnykkja einfaldlega á því að þetta mál er hér borið inn á ábyrgð meiri hluta þingsins, á ábyrgð Framsfl. og Sjálfstfl. Ef þeir vilja ekki hlýða á málefnalegar og skynsamlegar ábendingar og ráðleggingar, sem er m.a. að finna í ítarlegum og skýrum brtt. okkar, þá sé ég ekki annað en að þeir verði að bera ábyrgð á þessu máli einir og sér og uppskera þá í samræmi við það í næstu kosningum. Það styttist í þær, herra forseti. Það er það eina góða í þessu máli.