Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):
Herra forseti. Í nefndarálitinu var fyrirvara hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur ekki getið enda kom hann ekki fram á fundi nefndarinnar og heldur ekki þegar álitið var sent út til nefndarmanna. Ég vil aðeins að þetta komi fram.