Kjaramál fiskimanna og fleira

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 19:05:01 (7737)

2001-05-14 19:05:01# 126. lþ. 122.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[19:05]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Það er eins og hv. þingmenn hafi aldrei komið að afgreiðslu þingmála. Auðvitað verða frv. ekki að lögum fyrr en búið er að ganga frá þeim við 3. umr. Ég veit ekkert um hver verður heldur niðurstaða þess gerðardóms sem Hæstiréttur kann að tilnefna. En að sjálfsögðu reynum við að ganga þannig frá málum að þessi lagasetning standist.