Jóhann Ársælsson (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Mér þykir ekki gott að menn skuli ekki hafa haft ráðrúm til að komast hingað til atkvæðagreiðslunnar. Það er búið að hringja út til þingmanna um að mæta í atkvæðagreiðslu á síðustu mínútum. Ég hef fengið upphringingar þar sem menn hafa bókstaflega verið að sleppa tólinu og ná ekki hér í hús. Ég kvarta undan því og vek athygli á því að ýmsa þingmenn vantar í salinn þess vegna.