Félagsþjónusta sveitarfélaga

Þriðjudaginn 21. nóvember 2000, kl. 23:14:49 (2096)

2000-11-21 23:14:49# 126. lþ. 28.8 fundur 242. mál: #A félagsþjónusta sveitarfélaga# (heildarlög) frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.

[23:14]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil taka undir þessi orð hæstv. félmrh. Það er ekki eðlilegt að líta til einna samtaka, það er eðlilegt að líta til heildarsamtaka fatlaðra, sem eru Öryrkjabandalagið. Ég vil fagna þessu loforði, þeirri yfirlýsingu sem hæstv. félmrh. hefur gefið, að málið verði ekki keyrt fram í óþökk þessara aðila.