Ferill 39. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 39 — 39. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um umferðaröryggisáætlun og umferðaröryggismál.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hyggst ráðherra hraða endurskoðun umferðaröryggisáætlunar eða breyta vinnubrögðum að öðru leyti í ljósi mikillar fjölgunar alvarlegra umferðarslysa að undanförnu?
2. Er að vænta sérstakra aðgerða og aukinna fjárveitinga til umferðaröryggismála í ljósi þess að markmið um fækkun alvarlegra umferðarslysa samkvæmt gildandi umferðaröryggisáætlun nást ekki?