Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 294  —  266. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um rásir fyrir búfénað til að koma í veg fyrir slys.

Flm.: Þuríður Backman.



    Alþingi ályktar að við nýframkvæmdir samkvæmt vegáætlun verði gert ráð fyrir rásum fyrir búfénað undir vegi þar sem girt er með fram vegum en bithagar beggja vegna. Jafnframt verði hafin vinna við gerð slíkra rása undir vegi þar sem umferð er þung og bithagar eru nytjaðir beggja vegna vegar.

Greinargerð.


    Árlega berast fréttir af alvarlegum umferðarslysum sem orðið hafa vegna þess að búfé gengur laust á vegum úti. Eftirfarandi tafla sýnir slysatíðni af þeim sökum árin 1994–98 samkvæmt tölum frá Umferðarráði:

Ár Slys Dauði Mikið slasaðir Lítið slasaðir Óhöpp án slysa
1994 4 0 0 5 59
1995 3 0 0 4 91
1996 4 0 2 8 89
1997 5 0 1 4 117
1998 4 0 0 5 *
* Upplýsingar liggja ekki fyrir.

    Eins og hér kemur fram hefur fjöldi umferðaróhappa af völdum lausagöngu búfjár nærri því tvöfaldast á fjögurra ára bili og alls hafa 29 manns slasast í þessum óhöppum.
    Umræðan um lausagöngu búfjár á vegum og hættuna sem af henni skapast verður sífellt háværari og hafa margir orðið til þess að hugleiða hvað væri til ráða. Ein þeirra lausna, sem litið hefur verið til, er að setja upp girðingar með fram öllum vegum. Viðhald slíkra girðinga þarf að vera viðvarandi ef tryggja á að þær haldi búfénaði frá umferðarleiðum vélknúinna ökutækja. Girðingar með fram vegum hafa hins vegar þann ókost að draga úr nýtingu túna og verða jafnvel einnig til þess að fé er rekið um þjóðvegi.
    Þá er þess að geta að víða háttar svo til að bithagar eru báðum megin vegar eða bithagar öðrum megin og vatnsból hinum megin. Við slíkar aðstæður hefur oft dregist að girða vegi vegna augljósra vandamála sem það hefði í för með sér. Sú lausn sem hér er gerð tillaga um yrði til þess að víkja þeim vandamálum úr sögunni.
    Framtíðarlausn gæti verið að leggja göng úr ræsahólkum undir alla nýja vegi og vegi sem verið er að endurnýja og laga. Þannig má tryggja leið fyrir búfénað. Mikilvægt væri að nota tækifærið og gera slíkar rásir fyrir búfénað um leið og vegur er lagður eða endurbættur til að draga sem mest úr viðbótarkostnaði. Ef tekin verður ákvörðun um að girða þjóðvegi á næstu árum má um leið gera ráð fyrir búfjárrásum eins og hér er lýst og hafa um staðsetningu þeirra samráð við staðkunnuga í hverju tilviki. Enginn verulegur aukakostnaður hlýst af þessu ef það er gert um leið og vegirnir eru lagðir. Í nánast öllum tilvikum er hægt að staðsetja búfjárrásir af þessu tagi þannig að þær nýttust einnig til að hleypa burt leysingarvatni á vorin en væru þurrar í annan tíma.
    Í tillögunni er jafnframt lagt til að hafin verði vinna við gerð slíkra rása undir vegi þar sem umferð er þung og bithagar eru nytjaðir beggja vegna. Flutningsmaður gerir ekki tillögu að sérstakri viðmiðun í þessu sambandi enda getur reynst erfitt að draga mörkin aðeins við ákveðinn bílafjölda. Hins vegar er rétt að benda á að Umferðaröryggisnefnd Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og Akraness sendi nýlega frá sér ályktun um girðingar með fram vegum. Í ályktuninni er lögð áhersla á að girt verði með fram vegum þar sem 300 bílar eða fleiri fara að meðaltali um á dag að sumarlagi.
    Reynsla af umræddum búfjárrásum er fyrir hendi, t.d. á Austurlandi þar sem framsýnir bændur hafa fundið heppilega lausn á hættu sem stafar af lausagöngu búfjár. Sem dæmi má nefna bæinn Ásbrandsstaði í Vopnafirði, en þegar vegur þar var endurbyggður og lagt á hann bundið slitlag árið 1985 lét bóndinn þar leggja rörhólka undir veginn til þess að hægt væri að hleypa skepnum þar um án þess að þeim, eða akandi vegfarendum, stafaði hætta af. Fyrirkomulag þetta hefur reynst einstaklega vel.
    Rás eins og hér hefur verið lýst sést á eftirfarandi teikningu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.