Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 768  —  482. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)



1. gr.

    Við 6. gr. laganna, sbr. lög nr. 147/1998, bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
11.    Fyrir háttsemi, sem greinir í samningi um öryggi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna frá 9. desember 1994.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er samið í dómsmálaráðuneytinu. Með því er lögð til breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, vegna fyrirhugaðrar aðildar Íslands að samningi um öryggi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna sem gerður var í New York 9. desember 1994. Samhliða frumvarpinu verður lögð fram þingsályktunartillaga um aðild að samningnum. Samningurinn verður birtur sem fylgiskjal með þingsályktunartillögunni.
    Í samningnum er að finna ákvæði um réttindi og skyldur starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna við aðgerðir á vegum Sameinuðu þjóðanna eins og þær eru skilgreindar í 1. gr. samningsins. Samningurinn hefur meðal annars að geyma ákvæði um skyldu til að tryggja öryggi og vernd þessara starfsmanna, um skyldu til að láta lausa eða afhenda þá starfsmenn sem teknir hafa verið til fanga eða hnepptir í varðhald og um glæpi gegn starfsmönnunum. Þá eru ákvæði um lögsögu vegna brota gegn starfsmönnunum, varnir gegn glæpum gegn þeim, framsal og um gagnkvæma réttaraðstoð.
    Um refsilögsögu er fjallað í 10. gr. samningsins. Skv. 4. mgr. hennar skal hvert aðildarríki um sig gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar kunna að vera í því skyni að ákvarða lögsögu sína yfir þeim glæpum sem falla undir samninginn að því er varðar mál þar sem meintur árásarmaður er staddur á yfirráðasvæði aðildarríkisins og það framselur hann ekki til einhvers annars aðildarríkis sem hefur lögsögu í málinu. Með hliðsjón af þessu ákvæði þykir rétt að reglur almennra hegningarlaga um refsilögsögu verði rýmkaðar til samræmis við samninginn. Því er lagt til að nýr töluliður bætist við 6. gr. laganna þannig að unnt verði að refsa eftir íslenskum lögum fyrir brot sem falla undir samninginn enda þótt það sé framið utan íslenska ríkisins og án tillits til þess hver er að því valdur. Ekki er þörf á öðrum lagabreytingum vegna aðildar Íslands að samningnum.

Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breyting á almennum hegningarlögum,
nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum.

    Með frumvarpinu er lögð til breyting á almennum hegningarlögum vegna fyrirhugaðrar aðildar Íslands að samningi um öryggi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna. Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs.