Ferill 737. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1362  —  737. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til l. um kjaramál fiskimanna og fleira.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar.



    Nefndin ákvað að taka málið til frekari umfjöllunar eftir að því hafði verið vísað til 3. umræðu. Til fundar við nefndina komu Kolbeinn Árnason frá sjávarútvegsráðuneyti, Kristján Andri Stefánsson frá forsætisráðuneyti, Sævar Gunnarsson og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Grétar Mar Jónsson og Benedikt Valsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Ástráður Haraldsson hrl. Þá átti nefndin símafund með Friðriki J. Arngrímssyni hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.
    Aðildarfélög Sjómannasambands Íslands, að undanskildu Sjómannafélagi Eyjafjarðar, aflýstu í dag verkfalli sínu. Aðildarfélög Farmanna- og fiskimannasambands Íslands hafa á hinn bóginn ákveðið að halda verkfalli sínu áfram. Sama á við um Sjómannafélag Eyjafjarðar. Þá stendur verkbann aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna enn og hefur ekkert komið fram um að til standi að aflýsa því, hvorki að hluta né í heild. Staðan í vinnustöðvuninni er því óbreytt, enda komast engin skip á sjó og deilan um kjaramálin í jafnmiklum hnút og áður.
    Í 14. gr. laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, er gert ráð fyrir jöfnum rétti verkalýðsfélaga og atvinnurekenda til að beita verkföllum og verkbönnum til að knýja á um framgang krafna sinna og til verndar rétti sínum. Það skiptir því ekki máli hvort vinnustöðvun stafar upphaflega af verkfalli eða verkbanni. Þar sem verkfall var ekki boðað í upphafi eða þar sem verkfalli hefur nú verið aflýst stendur eftir sem áður verkbann. Afleiðingar þess eru hinar sömu fyrir þjóðarbúið. Þess vegna er jafnbrýnt og verið hefur að leysa kjaradeilu útvegsmanna og sjómanna. Því er nauðsynlegt að gerðardómurinn taki á þeim úrlausnarefnum með heildstæðum hætti sem um getur í 2. gr. frumvarpsins varðandi alla deiluaðila, enda er hann í eðli sínu sjálfstæður í störfum sínum.
    Með hliðsjón af framansögðu leggur meiri hlutinn því til að breyting verði gerð á 1. gr. frumvarpsins. Í ljósi gagnrýni á breytingartillögu meiri hlutans við 3. gr. frumvarpsins, sem samþykkt var við 2. umræðu, leggur meiri hlutinn til að felld verði brott skírskotun 2. mgr. 3. gr. til gildistíma annarra skyldra kjarasamninga.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.


Alþingi, 16. maí 2001.

Einar K. Guðfinnsson,
form., frsm.
Kristinn H. Gunnarsson.
Magnús Stefánsson.

Vilhjálmur Egilsson.
Árni R. Árnason.