Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst rétt að hv. þm. svari fyrst þeirri spurningu sem ég beindi til hans mjög skýrlega. Telur hann að landbrh. hafi vorið 1991 fylgt réttri stefnu þegar hann vildi setja sauðfjárræktinni þær skorður að ekki yrði stefnt að útflutningi á dilkakjöti?