Áhugamannahnefaleikar

Þriðjudaginn 05. febrúar 2002, kl. 13:58:20 (4024)

2002-02-05 13:58:20# 127. lþ. 69.1 fundur 39. mál: #A áhugamannahnefaleikar# frv. 9/2002, GuðjG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 127. lþ.

[13:58]

Guðjón Guðmundsson:

Herra forseti. Ég tel að það sé Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands en ekki Alþingis að segja til um hvaða íþróttir eru stundaðar á Íslandi. Íþrótta- og Ólympíusambandið hefur mælt með samþykkt þessa frv. og að áhugamannahnefaleikar verði leyfðir. Ég styð álit Íþrótta- og Ólympíusambandsins og segi já.