Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Nú vil ég spyrja hv. þm. Pétur H. Blöndal aftur. Það liggur fyrir að stóru bankarnir hafa tapað gríðarlegum upphæðum í fjárfestingum á höfuðborgarsvæðinu, milljónum, milljónatugum, milljörðum. Telur hv. þm. Pétur H. Blöndal að það geti verið að menn í bankakerfinu hafi eitthvað undarlega sýn á landið í heild sinni og séu því bara tilbúnir að lána til höfuðborgarsvæðisins og jafnvel til útlanda en sinni ekki landinu í heild? Hvar erum við þá stödd ef slíkur heimóttarskapur ríkir í fjármálakerfi landsins?