Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 14:22:40 (4673)

2002-02-14 14:22:40# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., SvH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[14:22]

Sverrir Hermannsson (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra undrast að ég skuli ekki hafa áhuga á að við eigum í þessu arðbæra fyrirtæki. Hvaðan hefur hæstv. ráðherra þær upplýsingar að þetta fyrirtæki verði arðbært eins og nú t.d. stefnir um álverð í heiminum? Ég hef ekki haft spurnir af þessu. Nei. Ég á marga vini í Noregi. En þeir eru ekki í starfi hjá Norsk Hydro og ég held að hæstv. ráðherra hafi kannski sjálf reynslu af því að þar er margt ágætra manna, Norðmanna.