Lokafjárlög 1998

Miðvikudaginn 24. apríl 2002, kl. 11:54:28 (8187)

2002-04-24 11:54:28# 127. lþ. 127.13 fundur 666. mál: #A lokafjárlög 1998# frv. 100/2002, Frsm. meiri hluta EOK (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur, 127. lþ.

[11:54]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Einar Oddur Kristjánsson):

Herra forseti. Hér liggur fyrir frv. til lokafjárlaga fyrir árið 1998 á þskj. 1281, 666. mál, frá meiri hluta fjárln.

Nefndin hefur haft frv. til athugunar. Í því skyni hefur hún leitað skýringa hjá fjmrn. varðandi beiðnir um auknar fjárheimildir, enn fremur óskað eftir áliti Ríkisendurskoðunar. Meiri hlutinn leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.