Sigríður A. Þórðardóttir:
Herra forseti. Það er ljóst að það eru nokkur stórmál sem stjórnarflokkarnir ætla sér að klára, og sem menn vilja greinilega tala mikið í. Meðan þingmenn stjórnarandstöðunnar halda hér ræður upp á marga klukkutíma er alveg ljóst að það tekur tíma að ræða þau. Ég tel að þá muni þinghaldið auðvitað dragast á langinn en ég tek undir að auðvitað er sjálfsagt að menn ræði málin. Allir hljóta samt að gera sér grein fyrir því að meðan verið er að halda hér tveggja, þriggja klukkutíma langar ræður ganga málin seint.