Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég lét segja mér þrim sinnum án þess að trúa að það væri ætlan yfirvalda að stefna þessu viðkvæma lífshagsmunamáli í ófæru vegna 5 milljóna króna. Nú hefur á nýtt ráð verið brugðið sem betur fer og ég vil þakka heilbrrh. fyrir það framtak.