Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Það væri að æra óstöðugan ef forseti ætti að fara að blanda sér mikið í umræður, spurningar og svör hv. þingmanna. Forseti verður að treysta formönnum nefnda til að svara eins og þeim þykir eðlilegast. Forseti getur ekki blandað sér í það.