Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Hér er stungið á slæmu kýli. Ég verð að segja að ég er auðvitað þakklát fyrir hversu greið svör hæstv. landbrh. gaf við spurningum hv. þm. Árna R. Árnasonar um þetta efni. Það er grafalvarlegt mál að hér hafi verið dengt á innanlandsmarkað 260 tonnum frá þessu eina fyrirtæki sem núna er komið í gjaldþrot og mun sjálfsagt aldrei geta staðið skil á því útflutningsgjaldi sem gert var ráð fyrir auk þess sem þetta gjöreyðileggur markaðinn fyrir kjötframleiðsluna á þessu ári.
Ég verð að segja að ég tek undir með hv. þm. Þuríði Backman. Þetta mál verður að rannsaka sem glæpamál.