Forseti (Halldór Blöndal):
Forseti vill geta þess til skýringar, til að ekki fari það fram hjá hv. þingmönnum, að fram hafa komið tvær brtt. sem ekki er getið á dagskrá. Það er annars vegar brtt. frá meiri hluta efh.- og viðskn. á þskj. 524 og svo brtt. á þskj. 528 frá 1. minni hluta efh.- og viðskn.
Hv. þm. óskar eftir að bera af sér sakir. Ég vona að hann skilgreini þá hverjar sakirnar eru.