Umræða um frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 10:35:02 (3035)

2001-12-12 10:35:02# 127. lþ. 50.93 fundur 228#B umræða um frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[10:35]

Forseti (Halldór Blöndal):

Af þessu tilefni vil ég taka fram að ég óskaði eftir því í samráði við nefndarmenn í efh.- og viðskn. að þessi umræða gæti farið fram í gær. En þá var mér sagt að minni hluti treysti sér ekki til þess að ljúka nefndaráliti í tíma og þess vegna átti ég von á því að það nefndarálit yrði tilbúið í dag. (SJS: Það er ómaklegt að saka ...)