Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 612  —  378. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 81/1991, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)



1. gr.

    Við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist: nema annað rekstrarform hafi sérstaklega verið ákveðið.

2. gr.

    Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Eiganda vatnsveitu er ár hvert heimilt að áskilja sér allt að 7% arð af eigin fé vatnsveitunnar. Ákvæði þetta nær eingöngu til vatnsveitu sem er ekki sjálfstæður skattaðili og að öllu leyti í eigu eins eða fleiri sveitarfélaga.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Frumvarpið er samið í félagsmálaráðuneyti og hefur það tvíþætt markmið. Annars vegar er lagt til að sveitarfélagi verði veitt fullt vald til að ákveða rekstrarform vatnsveitu sem það rekur. Hins vegar er lagt til að eiganda vatnsveitu verði heimilað að áskilja sér arðgreiðslur sem numið geti allt að 7% af eigin fé vatnsveitunnar.
    Ákvæði 1. gr. frumvarpsins er ætlað að tryggja samræmi við frumvarp til raforkulaga sem iðnaðarráðherra hyggst leggja fram og kynnt var á 126. löggjafarþingi, þar sem mælt er fyrir um að öll raforkufyrirtæki skuli vera sjálfstæðir lög- og skattaðilar. Þess eru nokkur dæmi að sveitarfélög reki í einu fyrirtæki eða stofnun héraðsrafmagnsveitu, hitaveitu og vatnsveitu. Ætla má að á næstu árum muni þessi fyrirtæki og stofnanir sveitarfélaga taka þátt í samkeppnisrekstri á sviði raforkuframleiðslu og verður þeim þá skylt að halda þeim hluta starfsemi sinnar aðskildum frá rekstri sem þau eiga einkarétt á, þar á meðal rekstri hitaveitu og vatnsveitu. Engu að síður kann að vera hagkvæmt að reka allar þessar veitur í einu fyrirtæki eða stofnun.
    Í núgildandi 1. mgr. 2. gr. laganna er mælt fyrir um að sveitarstjórn skuli fara með stjórn vatnsveitu í sveitarfélagi. Hefur ákvæðið verið túlkað svo að vatnsveita skuli annaðhvort vera hluti af sveitarsjóði eða rekin sem b-hluta stofnun í eigu sveitarfélags, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998. Er sveitarfélagi því ekki heimilt að reka vatnsveitu í formi sameignarfélags eða hlutafélags. Í 3. gr. laganna er hins vegar ákvæði sem heimilar sveitarstjórnum að leggja og reka sameiginlega vatnsveitu og er sveitarstjórnum þá jafnframt heimilt að gera með sér samkomulag um með hvaða hætti veitan skuli lögð og rekin. Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að orðalag 2. gr. laganna verði fært til samræmis við orðalag 3. gr. og þar með verði sveitarfélagi í sjálfsvald sett að ákveða rekstrarform vatnsveitu. Með því að gefa rekstrarform vatnsveitna í eigu sveitarfélaga frjálst er verið að koma í veg fyrir að skipta verði veitufyrirtækjum stofnana upp í fleiri en eitt fyrirtæki eða stofnanir.
    Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að bætt verði inn í lögin heimild fyrir sveitarfélögin að áskilja sér allt að 7% arð af eigin fé vatnsveitu. Greinin er að mestu efnislega samhljóða 1. og 2. gr. laga nr. 78/2001, um breytingu á orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingum, sem samþykkt var á 126. löggjafarþingi. Greinin er einnig í samræmi við 5. mgr. 7. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, þar sem segir að sveitarfélög skuli setja sér stefnu um arðgjafar- og arðgreiðslumarkmið í rekstri fyrirtækja sinna og stofnana og þeim sé heimilt að ákveða sér eðlilegan afrakstur af því fjármagni sem bundið sé í rekstri þeirra. Var því ákvæði ætlað að skjóta stoðum undir framkvæmd sem tíðkast hafði um árabil í rekstri sveitarfélaga þótt ótvíræða lagaheimild til þess hefði vantað í löggjöf. Í áliti meiri hluta félagsmálanefndar með frumvarpi sem varð að lögum nr. 45/1998 segir enn fremur að einnig þurfi að gera breytingar á ákvæðum ýmissa sérlaga til að tryggja enn frekar heimildir sveitarfélaga til að ákveða arðgreiðslur frá fyrirtækjum sem alfarið eru í eigu sveitarfélaganna og rekin eru á þeirra ábyrgð. Í samræmi við þessi sjónarmið er lagt til í 2. gr. frumvarpsins að sett verði skýr almenn heimild um arðgreiðslur vatnsveitna, líkt og þegar hefur verið gert í orkulögum varðandi rafveitur og hitaveitur.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:



Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum
um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 81/1991, með síðari breytingum.

    Frumvarpið gerir ráð fyrir að sveitarfélögum verði frjálst að ákveða rekstrarform vatnsveitu sem það rekur. Enn fremur er lagt til að eiganda vatnsveitu verði heimilað að áskilja sér arðgreiðslur sem numið geti allt að 7% af eigin fé vatnsveitunnar.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum hefur það ekki bein áhrif á útgjöld ríkissjóðs. Komi til hækkunar vatnsgjalda af þessum sökum leggst það á allar fasteignir tengdar viðkomandi vatnsveitu.