Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1054  —  482. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um flutning fjarvinnsluverkefna og starfa út á land.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða fjarvinnsluverkefni og hversu mörg störf á vegum ráðuneytisins og stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins, sem heyra undir ráðuneytið, voru flutt út á land árið 2001, sundurliðað eftir ráðuneytinu, stofnunum og fyrirtækjum, svo og eftir stöðum sem verkefnin og störfin voru flutt til? Enn fremur er óskað eftir skilgreiningu á umræddum störfum.

    Samgönguráðherra setti fram í bréfi, dags. 26. september 1999, til undirstofnana og fyrirtækja er undir ráðuneytið heyra, þá skýru stefnu að leita skyldi leiða til að flytja störf út á landsbyggðina. Í bréfinu sagði m.a.:
    „Eins og kunnugt er þá hefur búsetuþróunin í landinu verið landsbyggðinni mjög óhagstæð hin síðari ár. Ástæður þeirrar þróunar eru margvíslegar. Talið er að fjölgun atvinnutækifæra á vegum opinberra aðila á höfuðborgarsvæðinu eigi sinn þátt í þessari óæskilegu þróun. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að með markvissum ráðstöfunum muni ríkisstjórnin beita sér fyrir því að undirstöður byggðar í landinu verði treystar. Liður í þeirri viðleytni er að auka fjölbreytni í atvinnutækifærum og staðsetja stofnanir utan höfuðborgarsvæðisins eftir því sem unnt er.
    Með vísan til þessa, er hér með óskað eftir því við stofnanir ráðuneytisins að áður en nýtt starfsfólk er ráðið til starfa í ný verkefni eða starfsmenn færðir milli verkefna, verði kannað hvort unnt sé að vinna viðkomandi verk utan höfuðborgarsvæðisins, og þá helst á þeim svæðum þar sem atvinnulíf er einhæft.“
    Brugðist hefur verið við þessu bréfi með ýmsum hætti. Hér á eftir er yfirlit yfir það sem helst ber að nefna.

Vegagerðin.
    Vegagerðin flutti skiptiborð og hluta af upplýsingaþjónustu við vegfarendur, alls fjögur stöðugildi, til Ísafjarðar árið 2001. Þar er nú aðalsímsvörun Vegagerðarinnar og svarað í símanúmerið 1777 og veittar upplýsingar um færð og veður.
    Ráðinn var tæknifræðingur í eitt starf á Sauðárkróki til undirbúnings og eftirlits með vegamálun og gagnagrunnsvinnu. Á Akureyri var ráðið í þrjú störf, sem öllum hafði áður verið sinnt að hluta til í Reykjavík, en um er að ræða háskólamenntaðan sérfræðing í starf er varðar jarðfræði, tæknifræðing í umferðarannsóknir og starfsmann til að sinna slitlagsmælingum.
    Að ósk samgönguráðherra hefur Vegagerðin gert áætlun um að efla starfsemi sína á landsbyggðinni. Er þar um að ræða flutning verkefna frá Reykjavík út á land og ný störf á landsbyggðinni. Vegagerðin lítur á þetta sem þróunarverkefni, sem standa muni yfir í allmörg ár. Þau störf sem um er að ræða eru á sviði upplýsingaþjónustu, eftirlits af ýmsu tagi, gagnasöfnunar, gagnavinnslu, símsvörunar, umferðar- og umferðaröryggis og veghönnunar. Sum þessara starfa kerfjast tæknimenntunar en önnur byggjast á almennri menntun. Umdæmisskrifstofur Vegagerðarinnar eru á Selfossi, í Borgarnesi, á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri og Reyðarfirði og á þessum stöðum er þungi starfseminnar í hverju umdæmi. Miðað er við að hin nýju störf verði til á fyrrgreindum stöðum og þá einkum þeim sem fjær liggja höfuðborginni.
    Vegagerðin kaupir mikið af þjónustu af einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum. Reynt verður að beina þessum kaupum frekar en verið hefur til aðila á landsbyggðinni. Jafnframt því sem stefnan er ákveðin fyrir næstu ár verður unnið að athugunum og undirbúningi að frekari eflingu á starfsemi Vegagerðarinnar á landsbyggðinni.
    Á þessu ári stefnir Vegagerðin að því að flytja fjögur til sex ný störf frá Reykjavík til landsbyggðarinnar.

Flugmálastjórn.
    Á síðasta ári var undirritaður samningur milli Flugmálastjórnar og Akureyrarbæjar varðandi slökkvi- og björgunarþjónustu á Akureyrarflugvelli.
    Samningurinn felur í sér að Slökkvilið Akureyrar tekur að sér að annast slökkvi- og björgunarstörf og verkefni sem lúta að öryggismálum á Akureyrarflugvelli, sem Slökkvilið Akureyrarflugvallar á vegum Flugmálastjórnar hefur sinnt til þessa. Að auki mun Slökkvilið Akureyrar taka að sér þjálfun og faglega umsjón með slökkvi- og brunavarnarmálum á landsbyggðarflugvöllum Flugmálastjórnar, þ.e. öllum völlum öðrum en í Reykjavík og Keflavík. Þjálfunin hefur fram að þessu farið fram í Reykjavík en um er að ræða eitt stöðugildi. Með tilkomu samningsins fjölgar stöðugildum á Akureyri úr fjórum í sjö og hálft vegna aukinnar og bættrar þjónustu á Akureyrarflugvelli.
    Með þessum samningi hefur Flugmálastjórn haldið áfram á þeirri braut að fela sveitarfélögum rekstur flugvallarslökkviliða. Stofnunin hefur gert sams konar samning við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. um slökkvi- og björgunarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli.
    Á árinu var ráðið í nýja stöðu flugvallarvarðar á Egilsstaðaflugvelli vegna aukins viðbúnaðar. Heimild hefur fengist fyrir nýjum stöðum á flugvöllunum á Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum en ekki hefur verið ráðið í þær stöður. Flugmálastjóra hefur verið falið að undirbúa frekari samninga á þessu sviði.
    Á vegum Flugmálastjórnar er í auknum mæli keypt hönnunarvinna utan höfuðborgarsvæðisins, svo og ýmiss konar viðhaldsþjónusta.

Rannsóknarnefnd sjóslysa.
    Rannsóknarnefnd sjóslysa var flutt frá Reykjavík til Stykkishólms í lok síðasta árs og hefur aðsetur í flugstöðinni á Stykkishólmsflugvelli. Hjá nefndinni starfar framkvæmdastjóri auk annars starfsmanns.

Landssími Íslands hf.
    Svarað er í upplýsingasíma Landssímans, 118, á fjórum stöðum á landinu, þ.e. í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum. Á síðasta ári flutti Landssíminn 11 störf út á land, öll vegna uppbyggingar þjónustusíma 118 á Egilsstöðum.

Íslandspóstur hf.
    Íslandspóstur hefur á árinu 2001 flutt eftirfarandi störf út á land:
    Fjögur störf til Akureyrar vegna flutnings þjónustuvers fyrirtækisins fyrir einstaklinga.
    Rekstrarvörulager hefur verið fluttur til Blönduóss en þar er um tvö störf að ræða.
    Pökkun frímerkja til frímerkjasafnara hefur verið flutt út á land og viðheldur það tveimur störfum á landsbyggðinni, en ákveðið er með tilliti til verkefnastöðu hvar pökkunin fer fram hverju sinni.
    Þá er rétt að geta þess að árið 2000 var aðalskiptiborð Íslandspósts flutt til Akureyrar en það fól í sér flutning á tveimur störfum, pökkun fyrsta dags umslaga, sem er eitt starf, var flutt til Ísafjarðar og tvö störf við afgreiðslu og vörslu frímerkjalagers fyrirtækisins voru flutt til Borgarness.

Þjónustuver í Snæfellsbæ.
    Samgönguráðuneytið, Vegagerðin, Flugmálastjórn Íslands, Siglingastofnun Íslands og Snæfellsbær gerðu með sér samning árið 2001 um rekstur þjónustuvers samgöngumála í Snæfellsbæ fyrir Snæfellsbæ og Snæfellsnes. Tilgangur samstarfs þessa er að þróa starfsaðferðir til að bæta þjónustu samningsaðila á svæðinu, samnýta tækjakost og starfskrafta eins og unnt er og tryggja öryggi þjónustunnar. Þjónustan verður í húsnæði Vegagerðarinnar í Ólafsvík.
    Ákveðið hefur verið að ráðinn verði forstöðumaður fyrir þjónustuverið, sem hafi yfirumsjón með starfseminni, sé ábyrgur því að hún verði í samræmi við það þjónustustig sem skilgreint verður, stjórni starfsmönnum samningsaðila og beri fjárhagslega ábyrgð gagnvart samningsaðilum. Samningsaðilar eru sammála um að verkefni þetta sé tilrauna- og þróunarverkefni, þar sem taka getur þurft ákvarðanir um breytingar með stuttum fyrirvara. Við þessa breytingu verður til eitt nýtt starf. Jafnframt er til skoðunar að opna sams konar þjónustuver á fleiri stöðum á landsbyggðinni.