Katrín Fjeldsted:
Herra forseti. Ég lýsi furðu minni yfir þessu upphlaupi yfir máli sem er í allshn. og vil taka undir það sem síðasti ræðumaður sagði. Málið er til umfjöllunar í nefndinni og þar verður gengið frá því.
Það er hins vegar alveg rétt að stofnunin Almannavarnir ríkisins er í vissi óvissu. Hæstv. dómsmrh. hefur hins vegar skýrt að engar breytingar hafa orðið á þeirri starfsemi. Mér finnst vafasamt að reyna að sá fræjum efasemda hjá almenningi varðandi stöðu almannavarna á Íslandi. Það er algjörlega óþarft og ráðherra hefur svarað því. Það er engin óvissa um starfsemi þessarar stofnunar.